Færsluflokkur: Bloggar

bara blogg á hverjum degi

Ætlaði nú bara að láta vita af nýjum myndum af liðinu hérna:)

kv Magga


Já Erna mín.........

Mágsa að setja út á.............hihihi.....en ég hélt að það væri nóg að blogga bara einu sinni í mánuði. 

Allt að verða vitlaust hérna á höfuðborgarsvæðinu, dótabúðir opna hver af annarri, þvílíku verslanirnar út um allt bara......verður sennilega ekki erfitt að versla jólagjafirnar í ár.  Sit einmitt með bækling frá hinni stórkostlegu Toys"R"us......eins og biblía í augum barnanna.  Held að það verði nokkrir harðir pakkar undir jólatrjám heimilanna þessi jólin.  Fór með Patrek þarna um daginn, hann var nú mjög mjög stilltur.  Sagði mér og syndi fullt af hlutum sem hann vildi bara sko fá í jólagjöf mamma eins og hann sagði.  Svo fylgdi stundum: "mamma getum við ekki sagt ömmu, afa og Helgu og líka öllum hinum að það se komin ný dótabúð?" Bara gaman. 

Krakkarnir eru farnir til Arnars og verða þar um helgina og hvað gerir Magga þá????? Vinna og vinna, smá afmæli annaðkvöld ;) verður gaman.  Alltaf gaman þegar við í vinnunni förum saman eitthvað.  Var já sem sagt að taka á móti einu stk 40 feta gám í gær og hann var bara losaður í dag takk fyrir.  Engin vettlingatök hérna.  Reiknaði það í fljótheitum að sennilega lyftum við Erna ca. 7500 kg af brettum í dag......................enda er slappleiki frá fingrum niður í tær. 

 Farin í bað með bjór og kertaljós;)

 


Símanum skilað!!!

Já þá er maður lifnaður við á þessu blessaða bloggi:)  Sit hérna heima með bakið í hönk.....maður getur víst aldrei stoppað og slakað á og það bitnar á viðkvæmum stöðum ekki satt......

Skrapp til Lindu og Einars á laugardagskvöldið í mat....mmmmmmmmmm þvílík veisla.  Steiktum okkur grísalundir á steini með fullt af meðlæti.  Svona steinn kominn á óskalistann minn allavega:) 

Heyrðu já.....skrapp svo á ball uppi í Árbæ eftir matinn, Fylkisball (veit ég er ekki í Fylki en þetta var með vinnufélugum) Lenti svo í því óskemmtilega atviki að tapa símanum mínum á dansgólfinu! Vá hvað ég varð miður mín, nýlegur sími og með jú öllum upplýsingum í sem ég átti hvergi annarsstaðar.  Hringdum og hringdum í hann.......nánast skriðum undir sviðinu til að leita......haldiði að ég hafi svo ekki bara fundið hann hja dyravörðunum!!! Ég ætlaði ekki að trúa því að einhver hafi skilað símanum.......En ef sá hinn sami er að lesa þetta...þá takk takk takk.  Maður hefur heyrt sögurnar af því að fólk gleymi síma á afgreiðsluborði og nánast áður en það snýr sér við sé hann farinn.  Þannig að ég er sátt við FylkismennGrin

Endalausar framkvæmdir hérna hjá okkur á holtinu.  Fór í gær og keypti mér efni í nýtt tölvuborð.....skrúfuðum það svo saman í gær og allt á fullu. Held nefnilega að ég sé farin að vera svo viðkvæm fyrir drasli og rusli út um allt......aumingja fjölskyldumeðlimir mínir fá örugglega í magann þegar ég kem heim úr vinnunni á daginn og byrja að þusa hérnaWink en er að vonast til þess að það kenni fólki að ganga frá eftir sig frekar en að hlusta á þusið.  Kannski er þetta aldurinn........hmmmmmm. 

Já uppskeruhátíðir íþróttafélaganna voru um allt um helgina....Fh-ingarnir mínir rétt misstu af titlinumFrown en skulum horfa á það sem jákvæðan hlut....tökum bara bikarinn með stæl í staðinn.  Annars er þetta erfið staða.....ég FH-ingurinn og krakkarnir æfa með Haukum.....maður spyr sig hvað gera skal.......

Ég í hönknum kveð í bili.....


Bloggari dauðans!!!!!!!!!!!!

Já eruð þið ekki sammála mér í því? Ekkert smá dugleg að blogga hérna.....

En jæja,,,alltaf það sama bara hérna hjá okkur maurafjölskyldunni.  Erum bara komin á fullt í vetrarprogrammið, vinna, skóli, leikskóli, fótbolti......Rignir endalaust hérna á suðvesturhorninu þessar vikurnar og þá er ekkert rosalega gaman að vera að vinna við akstur úti í þessum flaumi.  En þá eru það bara bomsurnar og appelsínuguli pollagallinnWink

Það var æðislega gaman úti í Frankfurt eða réttara sagt Karlstadt (vorum þar í innkaupunum).  Stórkostlega fallegur bær og hlakka strax til að fara þangað aftur.  Þjóðverjarnir mjög afslappaðir og elskulegir þarna, dekruðu við rassgatið á okkur allan tímann. 

Ég tók þá ákvörðun að láta loksins verða af sófasmíðinni minni sem hefur staðið til í nokkra mánuði.....Helga sys og Fanney hjálpuðu mér auðvitað og þessvegna varð árangurinn líka þetta flottur

                                                    Brettasófinn

Bara nokkuð ánægð með hann:)

Jæja off to my sofa and dvd


Hinn góði dagur 15. ágúst

Já þetta er stór dagur í okkar fjölskyldu.  Fanney Lind náði þeim stóra áfanga að verða 12 ára í dag. Til hamingju elsku prinsessurassgatið mitt.  Pabbi er sextugur í dag.  Til hamingju elsku pabbi.  Margir ættingjar okkar og vinir eiga afmæli í dag....og síðustu daga líka. 

Við eyddum helginni í sumarbústað með stórfjölskyldunni uppi í Borgarfirði.  Mamma og pabbi ákváðu að bjóða öllum börnum og barnabörnum með um helgina í tilefni afmælis pabba.  Það var æðislegt að koma saman.  Við Fanney og Patrekur fórum strax eftir vinnu á föstudaginn þar sem við gátum ekki beðið:)  Mikil gleði var hjá okkur öllum, krakkarnir lágu í heita pottinum í sólinni....fóru í körfubolta með okkur Helgu....(nota bene við Helga rústuðum þessu náttúrulega.....) spiluðum minigolf....fórum í snoker...borðuðum, drukkum bjór (fullorðna fólkið þá) og við Helga áttum allan heiðurinn af pottanotkun með bjórívavi þessa helgina.  Sátum einar í pottinum þegar allir hinir voru farnir að sofa og höfðum það cosy:)  Við kunnum það nefnilega.  Það var flott grill á laugardaginn og pabbi fékk kíki frá okkur systkinunum.  Eiður kíkti í heimsókn á laugardaginn og það þótti nú honum Patrek ekki leiðinlegt.......að fá bestasta besta vin sinn í heimsókn.

Ég kíkti svo aftur í gærkvöldi þar sem Guðbjörn, Ragnar og konur voru væntanleg í grill í bústaðinn.  Það var að sjálfsögðu eftir þeim sú innkoma sem var þar......Læddust að svæðinu og laumuðust að jeppanum hans pabba og skiptu um númeraplötur....komu svo með þennan líka flotta pakka til pabba......leit í fyrstu út eins og heyrúlla.....allavega var þarna rúlluplast böggull sem bræðurnir skelltu upp á pallinn.  En þegar pabbi hafði nú eytt smá tíma í að rúlla plastinu utan af bögglinum...kom annað í ljós!  Haldiði að það hafi ekki verið 310 WC rúllur!!!    Þeir  sem þekkja húmor pabba og bræðranna skilja þetta.  hahahahaha....svo læddust þeir og sóttu jeppann hans pabba og renndu honum upp að húsinu....með númeraplötunni: D343.   Sem sagt gamla góða númerinu hans pabba.  Mikil gleði og hlátur fylgdi svo í kjölfarið á þessu öllu, grill, bjór, rauðvín, koníak og fleira.  Eiður kom aftur og kíkti á hina hliðina á familiunni......hann er allavega ekki hlaupinn ennþá...þannig að þau eru greinilega ekki svo slæmGrin.

Nú sit ég og pakka niður.  Er að fara til Frankfurt kl 7 í fyrramálið.  Er að fara í innkaupaferð á vegum vinnunnar.  Hlakka bara mjög mikið til.  Gaman að fá að bera ábyrgð og taka þátt í að stjórna þessu öllu.  Kem svo heim á laugardaginn þannig að ég ætti nú að ná smá hluta af menningarnóttinni.

Ætla nú að skella mér fram og hafa stjórn á vinkonupartyinu sem er í tilefni 12 ára afmælisins.  Pizzur, snakk og tónlist!!!

Þar til síðar.......hej hej


verðlagning á Íslandi.......

Já nú er ég eiginlega svolítið reið, eða pirruð réttara sagt.  Þannig er mál með vexti að ég hef verið að skoða fartölvur núna síðustu daga, mín skemmdist og hef kíkt aðeins eftir nýrri.  Vinur minn sem býr í Danmörku skýtur að mér hvort hann eigi ekki bara að kaupa fyrir mig tölvu og koma með til mín í ágúst......ég fer að skoða verðmun á þessu og ath hvort þetta myndi borga sig fyrir mig.  Fer inn á nokkrar síður úti og eins hér heima til að bera saman tegundir og verð.  Nú ætla ég að koma með dæmi:

Toshiba Satillite A100-886

  • Kostar á ísl....119.900
  • Kostar í DK....71.500

Acer Aspire 5104WLMI

  • Kostar á ísl....99.900
  • Kostar í DK....66.000 (en er samt stærri og flottari)

Vill einhver vera svo góður að segja mér......afhverju í andsk....þetta þarf að vera svona!!

Var nú bara nánast farin að pakka niður hérna áðan og tekið fyrsta flug til DK......

Smá viðbót.....við erum bara að tala um tölvur hérna í þessu tilfelli.....hvað ætli það sé mikill verðmunur á öllum öðru........?????  Ég bara spyr.


Heiðarleiki......eða ekki

Já það er orðið langt síðan síðast hérna.....skal alveg viðurkenna það.  Er búin að vera í sumarfríi núna í rúmar 2 vikur og hefur bara verið frábært.  Ekkert smá flott veður allan tíman og eiginlega smá léttir að fá smá rigningu núna.  Flökkuðum um vestfirði um daginn með mömmu og pabba, fórum svo í útilegu í Skorradalinn og þaðan í fermingu til Akureyrar þar sem hún Rakel yndisleg fermdist með pomp og prakt.  Alltaf gaman að kíkja á munkanna á AkureyriCool Þannig að núna er bara slökun í borginni (ef það er hægt að slaka á þar...)  Jú hvaða vitleysa....það er ekkert mál.  Ligg heima og blogga....bý mér til nýtt blogg fyrir LR Henning dótið mitt....og leik mér í playmo þess á milli.  Gerist nú varla betra. 

En já langar að segja frá atviki sem ég lenti í í gærkvöldi í Smáralindinni.....er smá svekkt út í okkur hérna.....

Þannig var að ég var ekki að gera flóknari hlut en það að leggja inn gsm inneign í hraðbanka í Smáralindinni.  Er að tala við Fanneyju, svara smsi og líka leggja inn (kennir manni kannski að gera ekki of margt í einu) Nema hvað, ég tek kvittun út sem sýnir mér inneign og ég labba frá hraðbankanum.....þegar ég er komin aðeins í burtu frá honum, fatta ég allt í einu að kortið varð eftir.....úbs...ekki gott.  Ég sendi Fanneyju hlaupandi að bankanum en nei...ekkert kort.  Ég hringi beint í Visa Ísland og læt þá loka kortinu en þá sagði hún mér að það gæti nú hugsast að hraðbankinn hefði tekið það inn aftur.  Það er víst gert til að forðast stuld á kortum sem gleymast, mjög sniðugt.  Í morgun hringi ég svo í viðkomandi banka....en nei nei...ekkert kort er í hraðbankanum.  Þannig að, á þessum kannski 30 sek sem liðu frá því að ég labbaði frá þessu þar til Fanney kom aftur, var búið að taka kortið.  Hugsa mig um, hvar er heiðarleikinn....viðkomandi hefur pottþétt verið þarna við hliðina þegar við vorum að leita......

Eins heyrði ég sögu um mann sem keyrði í burtu frá bensínstöð hérna á höfuðborgarsv. með gsm símann á toppnum á bílnum og hringir svo strax í símann sinn þegar hann fattar þetta......en nei..þá er bara skellt á.  Aftur og aftur.....þessi maður fékk aldrei símann sinn til baka...

Er ennþá þessi hugsun hérna....."Sá á hlut sem finnur"  Þetta var eitthvað sem maður notaði þegar maður var krakki og var eigingjarn á eitthvað....

 Man nefnilega eftir því að þegar ég bjó í Danmörku, á sínum tíma, þá var það svona óskrifuð regla að ef þú fannst eitthvað, síma, veski eða eitthvað annað verðmætt á götum eða annarsstaðar, þá setti maður það í næsta póstkassa og pósturinn sá alltaf um að koma hlutunum til skila ef hægt var að fá uppl um eiganda....tökum nú dani til fyrirmyndar!!

Jæja hætt þessu væli hérna og farin í playmó:)


Stjörnuspá!

Þú ert nógu góður til að gefa allt af þér, jafnvel þótt þú sjáir ekki í hvað orkan fer. Þessi kostur mun gera það að verkum að á næstu vikum færðu nýja vinnu, kauphækkun eða bónorð.

Já svona hljómar stjörnuspá morgundagsins, 13. júní.  Vona að þetta sé að segja mér eitthvað um gang morgundagsins............:):)


Hvað er að gerast með landann?

Langar að miðla smá reynslusögu til ykkar.

Þannig er að ég vinn jú sem sölumaður og fer á marga staði, hitti margt fólk og það allskyns fólk.  Sé margt bæði jákvætt og neikvætt.  Eitt dæmi kom upp í dag þegar ég var að vinna og fór í eina ónefnda verslun á höfuðborgarsvæðinu.  Það var búið að opna og það er nú þannig að oft er það eldra fólk sem fer að versla fyrst eftir opnun.  Þarna var eldri maður á röltinu í versluninni og var hann nokkrum sinnum búinn að labba framhjá mér og brosti alltaf góðlega til mín.  Svo heyri ég að hann reynir að tala við eina unga starfsstúlku þarna sem var að raða í hillur.  Hún svarar nú ekki alveg strax en svo þegar hann pikkar svona laust í öxlina á henni, sennilega haldið að hún heyrði ekki í honum, þá snýr hún sér"truntulega" við og hálfpartinn öskrar á hann: " I don´t speak icelandic!!!!!" Maðurinn hrökklast aftur á bak og brá greinilega mikið.  Labbar hratt frá henni í áttina þar sem ég stóð og fylgdist með þessu, þá kemur að honum maður sem hrúgar yfir hann skömmum á einhverju tungumáli sem enginn skildi....ég ákvað nú að ganga inní þetta og bjóða fram aðstoð mína við gamla manninn.  Hann var klökkur þegar ég ávarpaði hann og bauð hjálp mína.  Sagðist ekki skilja afhverju hann væri að reyna að lifa sjálfbjarga lífi og reyna að versla í matinn......það gæti enginn talað íslensku á Íslandi lengur.  Ég leiddi manninn að þeirri vöru sem hann leitaði að og hann var greinilega mikið þakklátur.  Ég labbaði síðan að þessari konu, pikkaði í öxlina á henni (eins og sá gamli hafði gert) og sagði (á ensku) hvað ertu að hugsa á meðan þú öskrar hér á gamalt fólk sem leitar eftir aðstoð.....ertu ekki að vinna hérna til þess að aðstoða??  Hún skildi þetta nú og tautaði eitthvað ofan í sig á þessu sama óskiljanlega tungumáli.  Það vill svo til að ég þekki verslunarstjóra þessar verslunar ágætlega og ég ákvað að tala um þetta við hann.  Sérstaklega þar sem þetta var nú ekki í fyrsta skipti sem ég sá svona.......Hann brást jú ekki vel við þessum fréttum og gekk rakleiðis til stúlkunnar og sá að þau áttu einhver orðaskipti þarna.  Skipti mér ekki af því eftir þetta......

Það sem að ég hugsaði eftir þetta, var......hvers eiga afar okkar og ömmur og jú foreldrar okkar kynslóðar að gjalda!!!!  Ég er ekki fordómafull manneskja....en stundum er mér ofboðið hvernig hægt er að koma fram við það fólk sem hefur komið þessu landi upp eins og það er......þeir sem hafa þurft að strita og púla allt sitt líf til að búa undir rassgatið á okkur!! Finnst við aðeins þurfa að bera virðingu fyrir því hvað þau hafa lagt á sig.  Eins með litlu krílin okkar.....þau eiga eftir að erfa landið okkar og eins gott að við förum aðeins að hugsa um hvernig við ætlum að arfleiða þau........

Já er í ham hérna.....varð mjög reið og sár í dag þegar ég sá þetta. 

Búin að ná mér samt vel niður,,,,búin að flétta tæplega hundrað fléttur í dag...Vinkonur Fanneyjar öfunduðu hana af fótboltafléttunum hennar....þannig að ég bauð mig fram til að prufa:) Puttarnir orðinir ansi þreyttir.  Hehehe....

En jæja best að fara að pakka fyrir Fanneyju, hún er jú að fara til Vestmanneyja á miðvikudaginn.

hilsner......Magga


nýjar myndir

komnar myndir líka......bara dugnaður sko!!!!

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband