9.5.2006 | 21:27
Vinna:)
Jæja þá er ég nú loksins farin að vinna aftur...það er æðislegt. Er reyndar bara að vinna hálfan daginn til að byrja með. Búið að vera mjög rólegt og notalegt...kannski ekki alveg að marka strax sko....bara búin að sitja úti í sólbaði...með litlu yndislegu vinunum mínum Það var alveg yndislegt að koma í gær í vinnuna...og þá komu þessi yndi hlaupandi á móti mér og maður drukknaði næstum því í faðmlögum og kossum og knúsum þau eru svo yndisleg. Þetta eru auðvitað forréttindin við að vinna á leikskóla...geta verið úti í góðum veðrum og þessi kríli gefa manni svo mikið. Öll leiðindi og vesen hverfa eins og dögg fyrir sólu....Wow skáldleg maður
kv..í bili....Magga
Athugasemdir
Já, Magga!
og þá er spurning hvenær þú ætlir að halda áfram í náminu ;)
kv. Íris
Íris Hjalt (IP-tala skráð) 10.5.2006 kl. 09:59
já ekki spurning um að halda því áfram um leið og þú getur góða mín þú hefur bara gott af því og gaman ;););)
kv Frænka
Helga Björg Garðarsdóttir (IP-tala skráð) 10.5.2006 kl. 10:14
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.