Byrjuð í nýju vinnunni:)

Jæja þá byrjaði dagurinn á því að mæta í vinnu á nýjum vinnustað.  Það var nú alveg ótrúlegt að ég svaf nánast ekkert í nótt, alltaf að vakna og kíkja á klukkuna.  Annaðhvort var ég svona stressuð yfir því að ég myndi mæta of seint eða svona mikil spenna.  Dagurinn var s.s bara mjög svo skemmtilegur.  Rúntaði í Njarðvík (Reykjanesbær heitir það víst) og svo bara að læra á tölvurnar og allt dæmið.  Líst ofsalega vel á þetta allt saman nema kannski hvað það er erfitt að komast í og úr vinnu....úffffff en ætla að gera tilraunir næstu daga hvaða leið er fljótlegast að fara.

patrekur örn......(Patrekur að æfa sig að skrifa á tölvunnaGráðugur)

Fanney og Helga eru að leika sér að teikna tattoo, er mest hrædd um að þær dragi mig í tattooveringu hérna...hehehe. 

Jæja ætla að halda áfram að skrifa smá hugsanir.....set þær inn seinna:)

kv Magga holtabúi


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband