Veikindi....endalaus veikindi

Þá er haustpestin búin að gera innrás á heimilið.  Patrekur búinn, Fanney að og sennilega ég næst.  Það hlýtur að vera þar sem að það er spa í laugum og matur á lækjarbrekku á laugardaginn með vinnunni!!!!  Væri nú súrt.....en maður stjórnar því víst ekki.

Annars er nú þvílíkt dekurlíf hjá Fanneyju núna, enginn skóli fyrr en á miðvikudag í næstu viku....enda var ég að segja við hana að hún ætti að skreppa bara vestur eftir helgina og dekra við ömmu sína og afa.  Ná sér í smá súrefni.

En jæja hef ekki baun að segja frá annað en það að ég var að reyna að læra og þessi h........ heimasíða sem námið er á er alltaf eitthvað biluð og svo fæ ég ekki svör við verkefnum eða neitt. Fer að sjá mikið eftir því að hafa farið í þetta hjá þeim þarna.   Ansi súrt þegar maður er að borga helling fyrir.   Og skilur lítið eftir sig.   En svona er þetta....stundum tekur maður skyndiákvarðanir sem borga sig og stundum borga þær sig ekki.

hætt þessu bulli í bili....kv Magga Holtó


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Íris

Hey, þú ert bara þreytt núna! þetta lagast allt :)

Íris, 26.10.2006 kl. 21:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband