1.1.2007 | 21:38
Árið 2007
Jæja gleðilegt ár allir saman þarna úti. Hérna á Holtinu var mikið um sprengjur á miðnætti. Það er eins og sagan segir.....maður má ekki sleppa karlpeningnum einum á flugeldasölurnar. hehehe jú jú þetta vara bara frábært og æðislega gaman hjá okkur hérna. Mamma, pabbi og Helga voru hjá okkur og svo auðvitað hann Hómer. Elduðum flottan mat, Ási og krakkarnir skreyttu líka þessa flottu áramótatertu, borðuðum á okkur gat yfir reyndar frekar slöppu skaupi, eða hvað fannst ykkur? Nokkrir ágætir punktar en samt.......kannski við bara húmorslaus hérna Fanney fór vestur með afa og ömmu í dag. Ætlar að ná sér í smá orku úr sveitinni áður en að skólinn byrjar aftur. Hún nýtur sín svo vel í skúrnum að smíða og föndra. Við Ási og Patrekur skruppum í Keflavík í kaffi og þar hitti Patrekur frændur hans Ása og þeir léku í bíló allan tímann mjög góðir gæjar allir saman.
En jæja svo er það stóra spurningin hvort að maður ætlar að fylgja öllum áramótaheitunum sem maður er búin að setja sér, svona með sjálfum sér. Það kemur allt í ljós seinna...ætla nú ekkert að vera að flagga þeim núna svona ef ég skildi klikka á þeim, þá getið þið ekki baunað á mig.
Endilega kíkið líka á áramótamyndir
kveðja Magga Holtó
Athugasemdir
Gleðilegt ár !
Íris, 2.1.2007 kl. 14:00
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.