úfff

Jæja þá er loksins vörutalning hjá Rún lokið!!!! úfffff ekkert smá.   Fleiri þúsund vöruflokkar út um allt hús...uppi undir lofti og niður við gólf....telja hvert einasta sokkapar takk fyrir.  Kommon...10 sokkar til eða fráWink Nei nei, þetta er nauðsynlegt og það var bara stemning í húsinu.  Allir kátir og glaðir eftir jólin, svo ef að maður taldi upphátt (svona til að ruglast síður) þá var kallað: "bannað að telja upphátt þegar maður er að telja!!!!" hehehe bara gaman. 

En já hún Fanney er bara ennþá í Búðardal.  Henni líður alltaf svo vel þar.  Skrapp í Hallkelsstaðahlíð í gær með Sædísi, Kristínu og Óla.  Kíkja á hestana.  Fannst það bara mjög gaman.  Fór svo með ömmu sinni í vinnuna í morgun til að kíkja á gamla fókið á Silfurtúni.  Svo er bara að koma henni suður fyrir helgina.  Hún vill nú helst vera þarna fram á sunnudag.....

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Íris

Úff,man þegar ég var í talningu. Vorum ekki búin að ná okkur eftir jólatraffíkina og svo var brjáluð útsala strax á eftir..........

Íris, 4.1.2007 kl. 15:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband