úfff úffff

Jæja nú fékk ég sjokk svona í morgunsárið.....komst ekki inn á bloggið mitt.  Sem betur fer var Ási að hlusta á tautið í mér og hann vissi afhverju.  Svona er að fylgjast ekki með.  Núna komin enn ein helgin, finnst eins og tíminn líði bara á fullu,,,,alltaf í helgarfríi.  Það er reyndar ekki slæmt.  Jú kannski að því leyti að maður nær varla að láta vikunna nægja til vinnu og þannig.  Svo er maður orðin svo bilaður að það er alltaf vaknað hérna kl 8 um helgar.  Komin þessi innbyggða klukka í mann.  Það er reyndar mjög notalegt, gott að sitja bara og lesa blaðið með shake í annarri og já......blaðið í hinni.  Brjálað að gera í líkamsræktinni, er farin að kvíða fyrir því þegar námskeiðið hættir í næstu viku.   Spurning hvað launaseðillinn segir, hvort að það verður keypt nýtt kort eða hvað.  Ég verð hálf hooked á þessu þegar ég loksins byrja.  Og þá synd að hætta.  Reyndar kem ég misvel undan tímunum þarna.  Suma daga er ég að drepast úr harðsperrum.....hreinlega að drepast get ég sagt ykkur.  Það er sérstaklega eftir Body pump.  Það snýst um að lyfta þungum lóðum og reynir mjög mikið á vöðvana.  Enda finn ég mjög mikinn mun á styrk og þoli hérna, sem ég er mjög ánægð með.  Það kom upp hugmynd um að halda smá keppni í vinnunni.  Allir sem vilja vera með myndu koma með 5000 kall og leggja í púkk, svo eftir einhverjar 10 vikur myndi sá sem væri búin að missa mest og þá með fituprósentu og allt inni í tölunni, fá þennan pening. Finnst reyndar smá áhætta í þessu.  Er hrædd um að það færi út í öfgar og fólk færi að nota óráðleg ráð til að létta sig.  Allavega mín skoðun.  Ætla bara að halda mér við minn heilsuhópGrin.  En jæja best að fara bara með krakkana út í sólina, labba niður að læk eða eitthvað.

 Bæ í bili....Magga


Framkvæmdum lokið

Jæja þá er loksins komin pása í tiltektargleiðina hérna á holtinu.  Komið nóg í bili held ég. Það var haldið upp á lokin með frekar rólegu "evróvision" (what a name) partýi.  Legið í sófanum og nartað í snakk.  Rauðhærði rokkarinn okkar vann, líst nú bara vel á það.  Ef einhver hefur vit á þessum herlegheitum, þá er það Eiríkur Hauks.  Allavega er það mín skoðun.  Það verður gaman að fylgjast með honum svara fyrir Silvíu Nótt.  obbbobbbobb......vorkenni honum nú hálfpartinn.  En svona er lífið. 

Það er brjálað að gera í vinnunni þessa dagana.  Skil þetta bara ekki alveg.  Oft sem ég kemst ekkert í mat eða pásur og þá þakka ég nú guði fyrir að það sé til Herbalife.  hehehehe annars væri ég sennilega dauð úr hungri.   Gott að geta gripið með sér shake og drukkið yfir daginn.  Verð að vinna til kl 6 í dag og er hérna í smá kaffipásu......stelst til að skrifa smá á meðan.  Annars er þetta mjög gaman hérna í vinnunni.  Alltaf nóg að gera, allir kátir og glaðir (eða flestir) og bara stuð sko. Langar nú að fara að komast með þeim í eitthvað partý en ég missti af síðustu herlegheitum.  Annars erum við að fara í leikhús í byrjun mars að sjá "pabbinn" í Iðnó.  Hlakka mikið til.  Svo erum við nú að fara að hittast "Laugadræsurnar" jibbý jibbý......það á að vera mojito- singstar partý og svo eitthvað players stuð á eftir held ég bara.  Vonandi að við getum allar hist núna, vantaði sko Berglindi aðalskipuleggjarnn síðast.  Vona bara að hún Inga fari að koma heim frá Kýpur til að vera með okkur.  En hún er vonandi með okkur í huganum bara.

En jæja,,, best að skella sér í vinnugírinn aftur......þar til næst......Magga


Frábær ferð

Jæja þá er maður komin til byggða frá austurlandinu.  Þetta var bara mjög góð ferð.  Flaug í morgun í stórkostlegu veðri....vægast sagt.  Svo æðislegt að fljúga svona í birtingu og horfa á roðann og fallega landið okkar.  Vildi bara helst ekkert lenda.  En það var ekki lengi sem sælan var, Bónus beið og allt á fullu spani þar.  Fullt af fólki með drasl út um allt, smiðir, sölumenn og allt að gerast.   Það tók því ekkert að sitja og horfa á liðið heldur var byrjað að skella upp pinnum og dóti á þá upp um alla veggi.  Ætla nú að óska þeim þarna á Egilsstöðum til lykke með verslunarstjórann þarna......hann er nú bara einn sá "næsasti" sem ég hef hitt í þessum bransa.  Mjög svo mikill hugsjónamaður á ferðinni.  Skelltum okkur aðeins á Búlluna í hádeginu og ég ákvað ásamt Jónu (christel) að fá mér hreindýraborgara.  Það var mjög gott get ég sagt ykkur.   Tók mig smá tíma að ákveða að þora......en sá sko ekki eftir því.  Kíkti aðeins á hana Helgu Björgu upp á Hafrafell.  Það var mjög gaman.  Þetta er frábær staður sem þau búa á þarna.  Rosalega fallegt.  Vona að þau geti farið að gera þetta að sínu heimili sem fyrst, fallegt og skemmtilegt hús sem þau eru í þarna.  Hún skutlaði mér svo á völlinn aftur.  Það var ekki alveg eins rólegt og fallegt flugið á heimleiðinni......ohhh nei nei.....byrjaði á þvílíkum látum á leiðinni upp frá Egilsstöðum og meira og minna hristingur alla leiðina.  Svo þykir mér aldrei gott þetta aðflug hérna í Reykjavík.......líður ekki vel að hristast og skjálfa.......falla aðeins niður og svona, rétt fyrir ofan sjóinn......ekki alveg ég.  En sem betur fer hafði ég hana Jónu við hliðina á mér allan tímann og við gátum blaðrað hvora aðra út úr hræðslunni.   En jæja.....best að fara að sofa úr sér sveitasúrefnið.....og byrja svo nýjan dag á menguninni hérna.......varla að maður tími því, en svona er lífið....

Kveðjur frá Holtó......Magga


æðisleg helgi að baki

Jæja þá er maður komin aftur í borg óttans og sveitasælan gaf manni nú heldur betur vind í seglin.  (skáldleg)  Það var æðislegt að komast aðeins vestur.  Krakkarnir slökuðu svo á og maður sat bara með þeim í legó og rólegheitum.  Fékk nú mest samviskubit yfir því að mamma greyið gat ekkert lært þar sem að hún stóð eiginlega á haus við að dekra við okkur......vonandi að ég geti bara hjálpað henni við að læra í staðinn.  

En núna er maður s.s komin aftur í daglega lífið og vinnan beið bara eftir manni.  Ási sat fram á nótt við að skrúfa saman skrifborð og stóla.  Ætlum að reyna að klára það í kvöld.  Svo var verið að gefa okkur sófasett.......Árni gaf okkur það......ætlum allavega að prufa að setja það upp heima og sjá hvort það passar í risa stofuna:) hehehe.  Mjög mikið að gera í vinnunni núna.  Mikið að koma nýtt, líka sumt sem átti að vera LÖNGU komið en er ekki enn og Maggan orðin smá stressuð yfir því.....verslunarstjórarnir farnir að spyrja aðeins of oft..... en svona er þetta.  Er að fara til Egilsstaða á morgun til að rútta til þar í Bónus.  Setja upp fullt af nýju dóti.  Helga Björg ætlar að sækja mig á völlinn og skutla mér í Bónus og vonandi fæ ég svo smá tíma til að kíkja á hana áður en ég kem til baka seinnipartinn......hlakka til:)  En jæja ætla að fara að koma mér heim að skrúfa meira......

ses igen......Magga


Sveitaferð

Jæja loksins kominn föstudagur og við á leiðinni í sveitina (Búðardal).  Hef ekki farið þangað með krakkana síðan í október (skömm að segja frá þessu).   Og ég ekkert á þessu ári......usss usss usss.  Enda var hann Patrekur snöggur á fætur í morgun þegar hann heyrðist minnst á að fara til afa og ömmu já og ekki má gleyma Hómer.  Verst er að maður borðar einhverra hluta vegna svo mikið þegar maður fer vestur.  Spurning um að gleyma alls ekki shakenum og taka hlaupaskóna með:)  

Loksins er nú farið að sjá fyrir endan á þessu málunarstússi heima hjá mér.  Orðið smá þreytandi að hafa drasl út um allt, en þetta fylgir þessu víst.  Ætla að ná mér í orku fyrir vestan (sofa s.s eins og alltaf) heheheh og klára þetta svo í næstu viku.  Er víst að fara til Egilsstaða á þriðjudaginn til að setja upp eitthvað "stuff".  Það verður fínt, ætla að kíkja á Helgu Björgu í leiðinni.  Það verður gaman að sjá loksins hvar þau búa.  

En jæja off to Búðardal....Magga


jæja...þá er HM búið

Jæja þá geta hinar frodómafullu "anti" handboltafríkur tekið gleði sína aftur, HM er búið og við lentum í 8. sæti og þar með alls óvíst að við náum á ólympíuleikana.    Sem er kannski bara ágætt.....nóg komið af yfirþrýsting.....allavega hérna hjá mérFootinMouth  Annars bara allt gott að frétta hérna.  Framkvæmdir vonandi að klárast, og allt að komast á sinn stað.  Fanney og Patrekur ekkert smá ánægð í nýju herbergjunum sínum.  Og mamman fær sennilega víðáttubrjálæði þegar hennar er tilbúið!!!!!   Verður allt öðruvísi að geta verið með tölvuna þar og þá meira pláss frammi og líka kannski meira næði ef maður er að vinna í tölvunni. 

Fanney er í Vogum á Vatnsleysuströnd.  Hún fór í morgun og kemur aftur á morgun.  Hún er þar með Haukunum á "litlu ólympíuleikunum".  Þar fer flokkurinn með þjálfaranum og fara í allskyns leiki og prufa aðrar íþróttir.  Svo var pizza og videó í kvöld og koma svo heim á morgun.  Mjög sniðugt til að hrista saman hópinn og fá þær til að kynnast á öðrum forsendum en fótboltanum.

Patrekur er hjá pabba sínum og er væntanlega ánægður að hafa alla athyglina núnaSideways  Hann virðist vera í einhverjum vaxtakipp núna......stækkar bara og stækkar....t.d eru sparibuxurnar hans sem hann fékk í byrjun des (og voru þá vel víðar og síðar) orðnar nánast of stuttar.  Enda fór ég á útsölu í Hagkaup í morgun og bætti aðeins úr buxnaúrvalinu í skápnum hjá honum.  Var nú lítið eftir þar en fann eitthvað....

Jæja nú fer að styttast í að litlu frændsystkini mín úti á landi fari að koma í heiminn......"Marteinn" á Akureyri og "bumbus"  (eins og ég kalla "hana") á Egilsstöðum. Það verður gaman að fara í vinnuna þegar þau koma.....fæ ég loksins að versla ungbarnafötin sem eru þarna......W00t

En nú er ég að hugsa um að fara í háttinn.....áður en ég fer að fá mér eitthvað að éta.....harka dauðans hérna núna.  

Kveðjur af "Mount Everest" (eins og Ási segir)  Magga og co

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband