Skreppa í sveitina:-)

Þá liggur leiðin í Búðardalinn á morgun.  Gott að komast aðeins úr bænum og liggja í pottinum....kannski fá sér einn bjórBrosandi eða bara vatnÓákveðinn.  Krakkarnir sofna varla fyrir spenningi. Þeim hlakkar alltaf til að komast þangað.  Svo varð nú smá spennufall hjá okkur hérna þegar við vorum búin að negla þetta með íbúðina.  Best að fara úr bænum til að fara ekki á eitthvað visa flipp..hehe nei nei ekkert þannig.

Svo ætlum við að byrja bara að flytja í næstu viku.  Bara að fara með kassa í rólegheitunum og nota tímann.  Reyndar vorum við að tala um að drífa okkur bara í þessu og losa og ganga frá hér.  Þá getum við farið að koma okkur fyrir þarna.

hils hils...Magga


jibbbbbýýý

Jæja þá er hægt að fara að anda rólega!! fengum nefnilega loksins íbúðHlæjandi.  Fáum hana afhenta strax eftir helgi þannig að við getum bara farið að týna dót í rólegheitunum þangað.  Þetta er mikill léttir.. vorum orðin svolítið stressuð hérna í kotinuÓákveðinn

En jæja...vildi bara segja ykkur öllum...

kv Magga


ummmm

Já sko þetta speltbrauð hans Eyþórs er nú alger snilldGlottandi.  Nú verður ekkert annað á boðstólnum.  Sem sagt...speltbrauð með philadelfia smurosti og kannski tómötum eða skinku.....gerist vart betra.

Annars er nú bara allt gott hjá okkur eins og vanalega.  Alltaf sama næturbröltið á manni samtÓákveðinn.  Það getur orðið erfitt að vakna á morgnanna þegar þetta er svona.  En það er alltaf eitthvað spennandi að gerast.

Jæja nú skal fara að sofa....kveðja í bili....Magga


Dugnaður í okkur systrunum:)

Jæja,,,nú erum við Helga búnar að sitja sveittar við tölvuna.  Tókum þá ákvörðun að búa okkur til matseðil fyrir viku í einu.  Svo á að gera sitt besta til að fara eftir honum.  Nú á að taka á mataræðinu og fara að borða vel og reglulegaGlottandi.  Þetta var ágætis tilbreyting frá því að sitja endalaust og leita að leiguíbúðum....það fer bara í taugarnar.  Við ætlum að kíkja vestur um helgina í smá slökun...ekki það að við séum neitt stressaðar hérna skoÓákveðinn.  En það er alltaf gott að komast í sveitina.  Það er líka langt síðan ég fór síðast og verð að komast til að athuga hvort að eitthvað hafi breyst...hehe.  Reyndar þurfum við að vakna snemma á sunnudaginn...úffff...og bruna suður aftur.  Erum nefnilega að fara á Ronju ræningjadóttir í Borgarleikhúsinu.  Finnst ég nú alltaf vera í leikhúsi þessar vikurnar.  Svo á að kíkja á Fullkomið brúðkaup í maíHlæjandi, og langar nú mjög mikið á litlu hryllingsbúðina....en er nú samt að spá í að slaufa því.  Takmörk fyrir öllu sko.

Nú fer að styttast í sumarfrí og það byrjar nú mjög vel hjá mér.   Landsmót.....Brúðkaup á Akureyri...og svo vonandi beint úr því í útilegu.   Gerist ekki betra. 

En jæja nú ætla ég að fara að gera tilraun með speltbrauðið hans Eyþórs.  Vona bara að ég sé eins góður bakari og hannBrosandi

Bæ í bili....Magga morgunhressa


Alltaf gott að borða

Jæja þá er loksins hægt að standa upp ánægður frá formúlunni Brosandi.  Annars er nú smá þreyta í gangi núna....skil ekkert afhverju.   Annars hefur maður það bara notalegt núna í sófanum enda hundleiðinlegt veður núna og ekkert betra en að kúra.  Krakkarnir eru hjá pabba sínum og eru þau að fara í fermingu hjá Önnu Ragnheiði.  Helga kemur í dag frá Akureyri...hlakka mikið til þess.   Við erum loksins að fá að vera saman eftir að hafa búið á sitthvorum landshlutanum lengi.

Jæja ætla að halda áfram að kúra...kv..Magga


ummmm pizza:)

Jæja ef maður er ekki ruglaður núna.  Klukkan 3 um nóttu og sit og ét pizzu......spurning hvað er heilbrigt skoGlottandi  Annars er ferðinni heitið í bæinn á morgun, smá verslunarferð.  Komst að því að börnin stækka en brókin ekki.  Allir skór og allt að verða lítið á krílin.   Þannig að það skal koma heim með pokaHlæjandi.

Jæja...ætla bara held ég að fara í háttinn....kannski kominn tími á þaðHissa

Kv. Magga


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband