Færsluflokkur: Bloggar
16.7.2006 | 18:00
gott að sjá ykkur!!
Jæja gott fólk....þá er víst kominn tími til að blogga smá. Ekki alveg staðið mig í þessu í sumar. Sumarfríið hefur verið mjög gott. Líður reyndar allt of hratt en það er víst gangurinn. Höfum nú ekkert ferðast mikið en fórum samt til Akureyrar 1. júlí í brúðkaupið hjá Eyþóri og Ernu. Það var að sjálfsögðu mjög gaman og yndislegur dagur hjá þeim eins og mátti búast við. Við stoppuðum reyndar á Hólum í Hjaltadal á leiðinni þangað og gistum eina nótt. Þar vorum við saman, ég og krakkarnir, Helga, mamma og pabbi og svo Helga Björg. Það er alltaf svo frábært að koma að Hólum. Við Helga og pabbi löbbuðum í Gvendarskál í frábæru veðri og það var frábært útsýni þar uppi.
Annars höfum við svo bara verið róleg heima og líka svolítið í Búðardal. Fanney er á fullu í fótboltanum og eru stífar æfingar og einnig leikir hjá henni þannig að við erum nú smá bundin hérna í borginni. Hún var einmitt að keppa á símamóti um helgina ásamt eitthvað um 1500 stelpum frá öllu landinu. Fengu reyndar ömurlegt veður vægast sagt. Rok og rigning alla helgina, en þær stóðu sig frábærlega samt sem áður. Ótrúlegt að sjá hvað þessar skvísur leggja á sig og láta ekki svona veður láta á sig fá. Skil nú ekkert í símanum, sem er nú styrktaraðili mótsins, að senda ekki veðurguðunum sms um að senda betra veður......eru nú hæg heimatökin hjá þeim. En eins og ég sagði þá stóðu þær sig mjög vel....urðu í 5 sæti af 14 í sínum flokki. Til hamingju Haukastelpur.
Ætlum nú að reyna að skella okkur í veiði í næstu viku....ef veður leyfir. Fanney er að spá í að taka sér frí á 2 æfingum og koma með. Svo er mót á Sigló í ágúst þannig að hún þarf að mæta vel þangað til. Svo stendur til að skella sér á dönsku dagana í Stykkishólmi, líka í ágúst. Þannig að það er alltaf nóg að gera.
En jæja...heyrumst síðar....hilsner Magga
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
18.6.2006 | 13:10
:)
Jæja þá er 17. júní liðinn og var mikil gleði í gær hjá okkur. Fórum niður í miðbæ Reykjavíkur og fylgdumst þar með mörgu skemmtilegu. Keyptar blöðrur og candy floss eins og fylgir þessum degi. Veðrið var bara ágætt....hlýtt og gott. Komu nú smá dropar svona á milli..aðeins til að við myndum ekki ofþorna. Svo fær maður endalaust skilaboð af austurlandinu.....sól og blíða og 20 stiga hiti......er þetta ekki bara bull?? Finnst þessu nú vera misskipt hérna á þessu landi. Svo var farið á KFC og keyptir fullir pokar af kjúlla og meðlæti til að naga yfir landsleiknum sem kom svo á eftir. Keyrði reyndar yndislegu börnin mín til pabba þeirra fyrir leikinn.....og það var nú erfið stund að skilja þau eftir.....alltaf að sjá það betur og betur hvað við erum nú háð hvoru öðru. En það hafa allir gott af þessu. Kom svo hér heim og þær biðu hérna....Helgurnar 2...þ.e.a.s Helga sys og Helga Björg. Horfðum á þennan stórkostlega handboltaleik. WOWOW hvað við vorum að tapa okkur yfir honum. Yndislegur leikur og loksins loksins unnum við Svía í einhverju svona einvígi!!!! Og ekki var nú verra að hindra þá í því að komast á HM. Með fullri virðingu fyrir svíum samt sem áður. Spurning um að fara bara að leggja fyrir og skella sér á HM á næsta ári. hummmmm gæti verið gaman.
En jæja nú erum við Helga sys að fara í Kringluna og kemba glugga og mátunarklefana:) það er þannig þegar margar veislur eru framundan.....þá þarf maður að versla,,,,,ekki satt?
Kveðja úr sólinni í dag (þótt ótrúlegt sé)...Magga
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.6.2006 | 22:31
já blogg.....hehemmm
Jæja.....þá skal skrifa. Allt í góðu hjá okkur maurunum hérna á holtinu. Við höfum nú bara verið að reyna að fagna sumrinu.....en veðrið kannski aðeins hamlað okkur. Fanney komin í sumarfrí og gekk alveg rosalega vel í prófunum....er svakalega stolt af henni. Það fer svo að styttast í að þau fari í orlof til pabba þeirra. Þau verða þar í 3 vikur. Það er brjálað að gera hjá mér næstu vikurnar. Virðist alltaf vera svona hjá mér þegar fer að líða á sumarið. Var í leikhúsi um helgina núna....17. júní svo að sjálfsögðu um þá næstu...svo útskrift hjá Lindu frænku...svo öldunga afmæli þann 28. júní. hehehe. Sorry sæta. Brúðkaupið hjá Eyþóri og Ernu svo 1. júlí....Eiríksstaðahátíðin 7.-9. júlí...þannig að mér ætti nú ekki að leiðast.
Já talandi um leikhús....fór á föstudaginn á Fullkomið brúðkaup í Borgarleikhúsinu. Þvílík SNILLD. Nú er ég ekkert að ýkja þegar ég segi að ég var með brosverki í andlitinu langt fram eftir nóttu....og með harðsperrur í maganum daginn eftir.....sökum hláturs. Hef ekki hlegið svona mikið í mörg ár. Enda ekki annað hægt þegar að Jói og Gói mæta saman....þeir eiga skilinn óskarinn fyrir leik.
En jæja....ætla nú ekki að ofgera skrifunum....hahahaha
kveðja í bili....Magga
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.5.2006 | 00:39
Jæja...kominn tími til:)
Jæja það er nú víst orðið svolítið langt síðan hér var skrifað síðast. Mikið búið að vera að gera síðustu daga og vikur eiginlega. Erum nú að vera búin að koma okkur fyrir hérna í Suðurholtinu. Veggirnir sem Óskar setti upp fyrir okkur halda enn allavega. Takk fyrir hjálpina Óskar!! Lyklarnir af Breiðvangi komnir í hendur nýrra og ánægðra eigenda. Furðulegt hvað það færist yfir mann einhver afslöppun þegar það kláraðist. En gott að vera komin hingað.....sumir hafa nú áhyggur af því að við séum alltaf á leiðinni nær Keflavík.....eða Grindavík.....veit nú ekkert hvað fólk er að tala um. Reyndar er ég ca 10-15 mín héðan til Keflavíkur en td er ég í 20-25 mín í smá kaffisopa til ömmu í Breiðholtinu......ok kannski nokkuð til í þessu hjá fólki.
Var núna að klára að horfa á Ungfrú Ísland. Hef nú ekkert mjög sérstakar skoðanir eða mikinn áhuga á þessari keppni yfir höfuð en frænka vinkonu minnar var þarna að keppa og lenti nú í 3. sæti. Til hamingju Linda, Steinunn og fjöskyldur
Fanney er á fullu í prófum þessa dagana. Gengur bara vel held ég. Les og les og leggur sig alla fram þessi engill. Hún er núna hjá pabba sínum og gistir þar í nótt. Þau eru að fara í sveitina til Ásgeirs og Unnar í Blönduhlíð....ætla að kíkja á lömbin og svona. Við Patrekur erum bara 2 hérna í rólegheitunum. Hann er nú allur að róast núna....búinn að vera smá tættur út af öllum þessum flutningum og tímaleysi allra í kringum hann. Getur bara verið að við kíkjum í bláa lónið með Kristínu og Sædísi á morgun. Ef gott er veður.
En nú er hún Helga Björg aðalyndi komin í næturspjall þannig að við sitjum hér fram eftir nóttu og rifjum upp gamlar syndir og gleðistundir.....fram á rauða nótt.
kveðja í bili......Magga
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
18.5.2006 | 02:16
Loksins flutt:)
Þá erum við loksins flutt....búið að taka smá tíma...úfffff. Gekk nú samt ofsalega vel að klára dæmið. Pabbi og mamma komu um helgina og við djöfluðumst hérna fram eftir öllu. Svo kom Guðbjörn og vinur hans með sendibíl til að taka stóru hlutina....og svo Ragnar settur í ruslið. hehe..takk strákar fyrir hjálpina. Og líka allir hinir sem hjálpuðu. Svo er bara að klára að þrífa og ganga frá í Breiðvangi og þá er hægt að fara að slaka á. Nú er ég að spá í að fara að vinna aðra hvora helgi, þegar krakkarnir eru hjá pabba sínum...Alltaf gott að fá smá auka pening. Var að sækja um þjónastarf á café Aroma í Hafnarfirði. Reyndar smá erfiðar vaktir....en finnst svo gaman að þjóna Gæti líka kannski unnið þar svolítið mikið í sumar þegar yndin mín verða hjá pabba sínum í 3 vikur. Hef víst lítið annað að gera þá. Þetta kemur allt í ljós á næstu dögum.
Er að fara í óvissuferð með vinnunni á föstudaginn vá hvað ég hlakka til. Verður mikið fjör held ég.
En núna verð ég að fara að sofa sko á að mæta í sjúkraþjálfun kl 8....
bæ í bili....Magga
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.5.2006 | 21:08
Ekker smá duglegar:)
Jæja þá er að leggja loka höndina á pakkningar og flutninga. Stefnum á að fara með stóru hlutina á sunnudaginn. Ætlum að nota góðmennsku pabba og mömmu og biðja þau um að hjálpa okkur. Þau eru á leiðinni núna í bæinn á Patrolnum góða....og fær hann sennilega að njóta þess að fá að flytja síðustu hlutina okkar. Þannig að ef að þið sjáið hvíta eldingu á ferðinni í Hafnarfirði um helgina....þá vitið þið hver er á ferðinni. Það er nú reyndar allt ilmandi í köku lykt hérna núna en Fanney og Katrín vinkona hennar voru að baka smákökur.....Reyndar ekki fyrir okkur heldur er vorhátíð í skólanum á morgun. En við Helga eigum nú örugglega eftir að næla okkur í eina og eina í kvöld...maður verður nú að fá orku...ekki satt??? En nú er ég komin með samviskubit...búin að sitja og pikka hér í 10 mín á meðan Helga pakkar það er nú ekki gott.
Kveðja....Magga
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
9.5.2006 | 21:27
Vinna:)
Jæja þá er ég nú loksins farin að vinna aftur...það er æðislegt. Er reyndar bara að vinna hálfan daginn til að byrja með. Búið að vera mjög rólegt og notalegt...kannski ekki alveg að marka strax sko....bara búin að sitja úti í sólbaði...með litlu yndislegu vinunum mínum Það var alveg yndislegt að koma í gær í vinnuna...og þá komu þessi yndi hlaupandi á móti mér og maður drukknaði næstum því í faðmlögum og kossum og knúsum þau eru svo yndisleg. Þetta eru auðvitað forréttindin við að vinna á leikskóla...geta verið úti í góðum veðrum og þessi kríli gefa manni svo mikið. Öll leiðindi og vesen hverfa eins og dögg fyrir sólu....Wow skáldleg maður
kv..í bili....Magga
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
7.5.2006 | 20:03
Frábær helgi:)
Þá er helgin að klárast og hefur hún verið mjög skemmtileg. Var svona að mestu leyti í fríi frá flutningum og pökkun. En var í staðin að hjálpa til við að setja upp nýja eldhúsinnréttingu hjá henni ömmu. Það var bara mjög gaman. Fannst skemmtilegast að fá að vinna með pabba....hef ekki gert það lengi og fann að við eigum bara vel saman í þessu. Takk fyrir skemmtilega helgi pabbi. Svo voru náttúrulega fleiri þarna....Amma að sjálfsögðu og Sirrý, Gæi og Helga Björg. Þetta gekk bara vel...eigum við ekki bara að segja það. Allavega komst hún upp og það var fyrir mestu...þó að við þyrftum að rífa helminginn niður aftur og svona...það var bara til að skaffa verkefni.
En núna er ég bara að bíða eftir börnunum mínum. Hlakka mikið til að fá þau heim.
Kveðja Magga
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
4.5.2006 | 01:45
Maður verður bara hræddur.
Já já Helga Björg mín....ég skal skrifa....verð bara hrædd við þig. Hehe nei nei ekkert þannig.
Það er alveg ljóst að okkur systrum er ekki treystandi fyrir Ikea ferð.....alveg á hreinu. Keypum þar hellin í gær...ætluðum aldrei að hætta. Svo urðum við að fara aðeins aftur í dag. Bara aðeins að kíkja sko. Enda hlakka ég mikið til þegar Ikea opnar hér á milli Hafnarfjarðar og Garðabæjar....minnkar bensín útgjöld hjá okkur. Vorum aðeins í dag að skrúa saman mubler úr innkaupaferðinni. Lentum í smá skondnu sko...fórum í Húsasmiðjuna. Okkur vantaði svo mikið sem skiptilykil og bitabox (fyrir borvélina sko) ekki að það sé aðal málið heldur er sko þjónustan orðin svo persónuleg þarna að það hálfa væri nóg. Hehe..Maður nokkur vippaði sér að okkur skvísunum....og bauð aðstoð sína. Jú jú við vorum að leita að þessum bitaboxum og ég hafði nú ákveðnar skoðanir á því hvað ég vildi. Þá vall uppúr garunum......"Já ert þú kona með verkfæradellu". WHAT!!! fannst þetta nú hálf hallærislegt...stóð þarna með einn aumingjalegan skiptilykilinn og horfði á bitana.....ef þetta er ávísun á dellu...þá hlýt ég að vera forfallin dellusjúklingur á mörgum sviðum. Svo máttum við varla stoppa við rekka þarna....þá var hann bara kominn aftur....þessi elska. Það er nú spurning hvenær þjónustan verður yfirþirmandi. En þetta er nú samt sagt með fullri virðingu fyrir Húsasmiðjunni
En jæja þá er nú spurning um að fara að sofa.....vonandi dreymir mig bara hana Helgu Bj sem er að bögga mig hérna....nei nei hún er það mesta yndi sem til er. Takk skvísa fyrir allt!!
Kveðjur úr kassahrúgunni....Magga
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
1.5.2006 | 23:00
Frábær dagur:)
Til hamingju með daginn. Þeir sem eiga hann Við fórum nú bara í okkar eigin kröfugöngu í dag niður á Víðstaðatún. Við Helga löbbuðum...Fanney og Elva vinkona hennar fóru á línuskautum og Patrekur hjólaði. Tókum bara með okkur nesti og skemmtum okkur vel í aparólunni og á víkingasvæðinu. Svo varð nú skyndilega kalt þarna þannig að við ákváðum að drífa okkur heim og þá voru nú fætur Patreks orðnir hálf þreyttir þannig að það lenti á Helgu að bera hann á háhest alla leiðina heim. En þar sem að hún er nú svo mikið tól...þá gekk það að sjálfsögðu bara vel.
Kíktum á íbúðina okkar í dag fengum sem sagt lyklana í dag. Öllum líst bara vel á og hlakkar okkur bara til að byrja að flytja. Þarna er rólegt hverfi og flott útsýni...það finnst mér mesti kosturinn. Þrái bara að sjá út. Sennilega eitthvað sem ég tek með mér úr sveitinni.
Við Helga skelltum okkur svo í bíó núna í kvöld. Fórum á mynd sem heitir Prime og er bara mjög góð. Ákváðum að leyfa okkur að fara í lúxus salinn. Það er geggjað. Verst að nú vill maður helst ekkert annað. Þarna liggur maður með tærnar upp í loft og fullt af plássi og þannig.....bara lúxus.
Kv í bili...Magga
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)